Greinargerð og tillögur vinnuhóps um meistaranám í hljóðfæra- og söngkennslu, 15. janúar 2010

Rektor Listaháskólans, Hjálmar H. Ragnarsson, skipaði þann 21. september 2009 þriggja manna vinnuhóp til að gera tillögur um námsbraut á meistarastigi í hljóðfæra- og söngkennslu við skólann. Í skipunarbréfi er tekið fram að hópnum sé ætlað að leggja fram tillögur um skipulag og samsetningu námsins þar sem m.a. væri gefin skýr mynd af eftirfarandi þáttum:

  • Tegund náms
  • Markmiðum og tilgangi náms
  • Megináherslum námsbrautar
  • Áætlaðri samsetningu og bakgrunni nemenda
  • Þætti rannsókna og listsköpunar
  • Helstu viðmiðum námsbrautarinnar
  • Alþjóðlegum samanburði og stöðu
  • Samstarfi við aðra háskóla og stofnanir, hér heima og erlendis
  • Inntökuferli
  • Þörf fyrir húsnæði, búnað og tæki

Þá var hópnum ætlað að leggja fram drög að kennsluskrá brautarinnar með lýsingum á helstu námskeiðum.

Vinnhópurinn skilaði inn greinargerð sinni 15. janúar 2010, og hefur hún verið kynnt fyrir stjórn Listaháskólans og stjórnendum.

Í hópnum voru þau dr. Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari, sem var formaður hópsins, Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, píanóleikari og formaður Félags tónlistarskólakennara, og Kjartan Óskarsson, klarínettuleikari og skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík.

Skýrsluna má sjá hér