Tónlistardeild
Í tónlistardeild er boðið þriggja ára nám, 180 einingar, til B.Mus. og BA gráðu. Annars vegar er lögð meginháhersla á hljóðfæraleik og söng, en hins vegar á almennt sérhæft tónlistarnám í menntun og miðlun, kirkjutónlist og tónsmíðum með áherslu á nútímatónsmíðar, kvikmyndatónlist, leikhústónlist, upptökustjórn eða nýmiðlun. Einnig er í boði diplómanám ætlað sérstaklega hæfileikaríkum nemendum sem enn stunda almennt nám á framhaldsskólastigi, en standast kröfur skólans um kunnáttu og færni í tónlist. Á meistarastigi er boðið tveggja ára, 120 eininga nám í tónsmíðum til MA gráðu, auk samevrópsks meistarnáms Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf, sem er samstarfsverkefni 5 tónlistarháskóla í Evrópu. Hlutverk tónlistardeildar er að mennta tónlistarmenn og undirbúa þá fyrir störf í tónlist á breiðum grundvelli. Markmiðið er að þeir tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, auki við þekkingu sína og færni og rækti sjálfa sig sem sjálfstæða listamenn. Námið skal standast alþjóðlegar kröfur og taka mið af fjölbreyttum verkefnum tónlistarmanna í tónlistarflutningi, nýsköpun og við kennslu. Útskrifaðir nemendur tónlistardeildar eiga að vera afl sem auðgar samfélagið.
Deildarforseti: Mist Þorkelsdóttir
Prófessorar
Kammertónlist og strengjaleikur: Gunnar Kvaran (í leyfi veturinn 2011-2012)
Tónsmíðar og tónfræði: Kjartan Ólafsson
Gestaprófessor í söng: Kristinn Sigmundsson
Aðjúnktar
Fiðluleikur: Guðný Guðmundsdóttir
Flautuleikur: Martial Nardeau
Kammertónlist: Svava Bernharðsdóttir
Mennt og miðlun: Sigurður G. Halldórsson
Píanóleikur
Nína Margrét Grímsdóttir
Peter Maté
Richard Simm
Selma Guðmunsdóttir
Sellóleikur: Sigurgeir Agnarsson
Söngur
Elísabet Erlingsdóttir
Ólöf Kolbrún Halldórsdóttir
Tónlistarfræði: Þorbjörg Daphne Hall
Tónsmíðar, tónfræði og nýmiðlar
Gunnsteinn Ólafsson
Hróðmar I. Sveinbjörnsson
Ríkharður H. Friðriksson
Tryggvi M. Baldvinsson
Úlfar Ingi Haraldsson
Fagstjórar
Hljóðfæraleikur: Peter Maté
Kammertónlist: Gunnar Kvaran (í leyfi veturinn 2011-2012)
Mennt og miðlun: Sigurður Halldórsson
Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf (samevrópskt meistaranám): Sigurður Halldórsson
Söngur: Elísabet Erlingsdóttir
Tónlistarfræði: Þorbjörg Daphne Hall
Tónsmíðar og tónfræði: Kjartan Ólafsson
Tæknistjóri: Sveinn Kjartansson
Deildarfulltrúi: Sóley Björt Guðmundsdóttir
Þjónustufulltrúi: Margrét Rún Guðmundsdóttir



